|
Könnun
Hver kemur með 2009 barnið?
Erla
7 atkvæði
Hulda
26 atkvæði
Linda
25 atkvæði
Sandra
6 atkvæði
Selma
5 atkvæði
Sonja nr 3
12 atkvæði
Steinunn nr 2
3 atkvæði
Sveindís nr 2
9 atkvæði
Fjöldi atkvæða: 93
|
05.03.2009 17:33:04 / Linda P
hæ hó eitt kvart hér..hverjir eru eiginlega að beila á saumaklúbbunum okkar endalaust??? Steinunn var síðast með í janúar sem átti að vera í desember.Erla ég held að þú hafir átt janúar..ekki satt? En hver feb? Sveindís? Eða mars? Mai? og svo á ég júni minnir mig....ég vil ekki sjá svona beil og sá sem á mars verður nú aldeilis að bæta úr þessu þykir mér.. En að öðru þá er ykkur yndislegu
píunum
mínum auðvitað boðið í afmæli
Föstudaginn 13 kanski svona um
kl 20.00  Þið meigið endilega láta mig vita bara sam fyrst hvort að þið komist eller hvad? Ég veit að Erla kemur, en Einar? Og Selma og Siggi Og Hulle en Fab? og svo veit eg bara ekki með ykkur hina rassálfana  ??? Luvs 
»
16.01.2009 10:34:06 / Hulda
Vildi bara segja gleðilegt ár til ykkar allra sem ég hef ekki hitt á nýju ári og takk fyrir öll gömlu góðu  Komst ekki í afmælið hennar Steinku því miður, var í boxbúðum á Laugarvatni yfir helgina en var hjá ykkur í anda! Hvenær er næsti hittingur stelpur? Mikið til að tala um, of langt síðan síðasti almennilegi slúðurhittingur var. Var það ekki heima hjá Lindu rétt áður en ég fór til Ítalíu í NÓVEMBER? Sakna ykkar litlu lúðabörn og ELSKA! Hulda Jóns
»
25.12.2008 11:17:26 / Hulda
Gleðileg jól öllsömul! Þar sem ég er í bigtime jólafríi þá hef ég að sjálfsögðu sett mér fyrir ýmis verkefni hér heima við eins og að taka í gegn alla skápa og sortera og pússa og brjóta saman ÞAÐ er alvöru Huldufrí. Love it. Nú er bara eitt sem ég er að spá í og datt í hug að setja það hérna inn. Þannig standa mál að ég týni eiginlega aldrei neinu og ef ég geri það þá verð ég gjörsamlega obsessed að leita að því og VERÐ að finna það. In case að ég hafi lánað einhverjum eitt af þessu þrennu, þá megiði láta mig vita, eða ef ég hef gleymt þessu heima hjá einhverjum, þetta er HORFIÐ og ég er alveg brjáluð yfir því  Ljósgrá Mango golla með 2 tölum, frekar síð Svört rennd Mango peysa með gylltum rennilás, mjög mjúk og þunn LG ferða dvd spilari hvítur á litinn og frekar svalur! Bara ef þið hafið séð þetta einhversstaðar ástinar mínar! Ég held að ég sé ekki með neitt sem neinn á hérna heima, en núna er einmitt rétti tíminn til að skoða það betur! læt ykkur vita ef ég finn eitthvað sem þið eigið heima hjá mér Elska ykkur! Hulda semi óða
»
24.12.2008 00:32:42 / Hulda
Elsku Erla Gerður okkar!!! Innilega til hamingju með afmælið þitt í dag! sorrí að ég komst ekki í morgun:/ var að vinna í allan dag! Elska þig gæra!  ókei, ég ætla að játa....að ég hef ekki verið jafn nammisjúk og átsjúk og smáköku og malt og appelsín og coke light sjúk í marga mánuði!!! og það er svo slæmt!! díses Strax STRAX eftir áramót verður hart tekið á. Annars verð ég Hulda feita! það viljum við ekki! Hafið það gott elskurnar mínar-það var eiginlega pretty much það eina sem ég átti eftir að segja. Jólakossar-Hulda
»
14.12.2008 14:33:41 / Hulda
Hæ jólafólk...! ...eða ég ætla rétt að vona að flestir séu komnir í jólagírinn og farnir að hlakka til hátíðanna. Það sem er helst í fréttum af mér, er... - ég bakaði 3 sortir síðustu helgi
vel gert ekki satt? - ég fór í vinnuna eins og venjulega á mánudaginn en var send heim í hádeginu af yfirmanninum mínum því ég var veik.
- Var heima á þriðjudegi en fannst ég vera að hressast um kvöldið svo ég fór í vinnu á miðvikudag...og það eina sem það skilaði mér var að ég varð ennþá veikari og var heima á fimmtudag og föstudag.
- Ókei núna hugsið þið, hvað er hún að kvarta yfir því að vera heima? Jú, ég viðurkenni það að það getur verið ágætt og kósí að liggja uppi í rúmi. EN ekki í MARGA DAGA! ég verð vitlaus. ÉG verð SVO vitlaus af því.
- Dæmi um það hversu vitlaus ég varð:
- Ég lá uppi í rúmi og gat ekki sofnað kl hálf 2. Svo ég ákvað að fara framúr og pakka inn öllum jólagjöfunum fram á nótt. Það er samt ekkert skrítið.
- Ég ákvað að taka allt í gegn inni á baði og sortera í skápunum og allt það en endaði með því að vera hálf inni í sturtunni að skrúbba alla sturtuna að innan.
- Að lokum varð baðið sótthreinsað.
- Þurrkaði af öllu heima, það er samt líka eðlilegt hjá mér.
- Fór að skrifa niður fullt af smákökuuppskriftum í mína eigin uppskriftarbók sem ég ákvað að væri mjög mikilvægt að byrja að búa til og eiga. Þegar ég verð amma vil ég eiga mysterious uppskriftarbók og að öll barnabörnin mín haldi að ég hafi búið til allar uppskriftirnar sjálf. Hvenær myndi ég sjálf búa til uppskrift!?
- Skúraði forstofuna og ryksugaði dauðan ánamaðk og klígjaði við því
- Vonaði alla daga að ég fengi ekki frunsu því það kemur oft fyrir þegar maður fær flensu.
- Fékk ekki frunsu (Jinx ég fæ þá bókað á morgun)
- Hékk endalaust á facebook
- Ákvað að baka piparkökur og endaði í að baka 10 plötur eða meira. Missti mig aðeins í að gera deigið. Varð svolítið mikið.
- Prófaði að gera piparkökur fyrir lengra komna sem eru með brjóstsykri í miðjunni, frekar fancy en ekkert smá vont á bragðið!
- Vaknaði klukkan hálf 9 daginn eftir og gat ekki sofið meira. Fór inn í eldhús og bjó til allskonar liti af glassúr og skreytti ALLAR piparkökurnar. Tók 3 klst eða meira. En ég GAT ekki hætt.
- Þreif eldhúsið eftir allan baksturinn. Ákvað að það væri mjög nauðsynlegt að ryksuga eldhúsið...og síðan ganginn og síðan allt sem hægt var að ryksuga.
- Ákvað að það þyrfti að endurraða í ískápinn. Gerði það.
- Pússaði alla spegla í heiminum.
- Þreif og sorteraði allt sem hægt var að þrífa og sortera, fór í gegnum sokkaskúffuna mína og var að hata þá sokka sem áttu engan partner. Aleinir og einskis nýtir. Ákvað samt að geyma þá ef hinn myndi birtast aftur. Sem gerist eflaust næst þegar ég skipti á rúminu, en þeir leynast oft í lökum sem hafa farið í þurrkarann og síðan beint inn í skáp brotin saman. Með einum SOKK inní horninu.
- Hata horfna sokka
- Byrjaði að lesa bók um stelpu sem þrífur hús í miðbænum. Viðeigandi.
Vonaði af öllu hjarta að hún væri betri en síðasta bók sem ég las sem heitir Áður en ég dey og var þunglyndasta lesning sem ég hef á ævinni þurft að upplifa. Ekki lesa þá bók nema hún sé sú eina sem þið eigið. Það er alltaf gott að lesa býst ég við. Þessvegna minni ég enn og aftur á það að mig langar í bækur í jólagjöf.
- Bjó til kerti úr öðrum kertaafgöngum, var frekar bráð og brenndi mig.
- Elskaði það þegar systir mín hringdi klukkan hálf tólf um kvöld og ákvað að kíkja til mín og við borðuðum snakk og smákökur og skoðuðum klassískar píanónótur langt fram á nótt og spjölluðum-það eru jólin!
- Semsagt var það eina sem flensa ársins skilaði-OCD og Monicu einkenni. Takk fyrir.
- Ef einhver vill koma í kaffi og PIPARKÖKUR sem eru OF fallega skreyttar og frekar Bree Van De Kamp ef þú spyrð mig, hringdu þá á undan þér og ég verð með heitt kakó. Verður samt að vera skemmtilegur gestur.
- Þess má til gamans geta að ég, Katrín og Eyrún úr boxinu hittumst svo á föstudagskvöldið og borðuðum pítsu, síðan kíktu fleiri við og þetta var notalegt rólegheitakvöld..með góðu fólki
- Ég er farin að þrá það að fara á æfingu svo mikið og hlakka svo til morgundagsins. herre gúút. kooooma svoooo.........

- Í gær var svo jólahlaðborð Ársels haldið í nýju og flottu hlöðunni í Gufunesbæ. Allt mjög bjútífúl. Við Katrín vorum mættar á staðinn ásamt fleirum kl 14 þar sem við erum í skemmtinefnd-að skreyta og gera fínt. Svo um kvöldið var ég svo búin á því og ekki alveg búin að ná mér af flensunni að ég fór heim fyrir miðnætti, steinsofnaði og vaknaði ekki fyrr en 11 í morgun sem var GOTT!
Þetta blogg er ekki búið að vera neitt nema useless information fyrir ykkur að lesa í skammdeginu Elska ykkur vinir mínir! JólaHulda
»
29.11.2008 16:28:42 / Hulda
Hæ elskurnar mínar! Eins og við mátti búast var ítalíuferðin mín dááásamlega yndislega skemmtileg Segi ykkur betur frá þegar við höfum tíma saman í rólegheitum! Hlakka til að hitta ykkur fljótlega, væri gaman að taka smá djamm eða bara hitting heima og baka pipó eða eitthvað. Myndirnar eru flestar komnar á facebook. Elska ykkur of mikið !  Hulda
»
16.11.2008 00:08:45 / Hulda
Hæææ! ...ég var nú sem betur fer bara svartsýn í einn dag-átti góða viku, svo Erla Gerður ekki koma og taka í mig litli massinn þinn! Ég sit heima uppi í rúmi og er búin að eiga svo yndislega góðan laugardag...að gera ekkert! búin að dreyma um svona laugardag lengi. Setti símann á silent og var í náttfötunum og dúllaði mér hérna heima, bakaði og föndraði með frænku minni, fékk mér að borða með litlu systir, lærði smá í ítölskubókunum, þvoði þvott, spilaði á píanóið, fór í bestu heitu löngu sturtu í langan tíma og hafði kveikt á kertum Ég mæli með nokkrum hlutum í skammdeginu og kreppunni og já, bara þessa dagana... - Kveikið á kertum þegar þið komið heim á daginn/kvöldin! það er best
- Farið á æfingu, maður er svo miklu sáttari við sjálfan sig í lok dags ef maður hreyfði sig yfir almennilega...og hver vill ekki worka 6-packið!?

- Bakið! Það kemur svo góð lykt um allt heimilið og svo er ekki slæmt að geta boðið upp á eða borðað kökur!
 - Gefið fólki tækifærisgjafir! -það er eitt það skemmtilegasta sem ég veit um!
- Hlustið á tónlist!
- Byrjið að kaupa jólagjafir ef þið eruð ekki byrjuð! mér finnst svo leiðinlegt að vera að þeysast um allt rétt fyrir jól að reyna að finna góða gjöf handa hverjum og einum. Tökum ágætis tíma í þetta og veljum vel! p.s. Ég hef heyrt það að ÉG vilji bækur í jólagjöf!
- Hrósið fólkinu í kringum ykkur ef það á það skilið!
- Eyðið tíma með fólkinu sem þið elskið
- Drekkið smá malt og appelsín og borðið pínupons piparkökur, gefur manni örlítið forskot á sæluna! En bara um helgar
- Borðið ávexti og skyr
- Burstið tennurnar og notið tannþráð!
- Pantið mat frá Austurlandahraðlestinni, en það er einn besti matur sem ég hef smakkað. Hljómar skrítið en er OF gott. Tikka Masala kjúklingurinn, hrísgrjón og nan brauð og síðan grænmetisréttur sem heitir eitthvað Abu Blablú man ekki . Geggjað!
- Jæja, that's about it...elska ykkur snúðar!
Til að monta mig aaaðeins...þá er ég að fara til Ítalíu á föstudaginn...að týna ólífur og slaka á under the Tuscan sky...og keyra um á splunkunýjum sportara sem er einmitt alveg eins og var í nýju James Bond myndinni  Þetta verður geggjuð dekur og afslöppunar ferð! Gef ykkur ítalskt bros þegar ég kem heim!  Góða nótt! Hulda Jóns
»
10.11.2008 12:11:40 / Hulda
ókei ég ætla að koma með neikvæðustu og svartsýnustu færslu lengi! ég er með svo mikinn haustleiða! það er ekki fallegt haust og ágætt veður, það eru ekki jól, það er ekki sumar og sól!! það er bara ekkert! það er bara venjuleg vinna og kalt og rok og dimmt og ég er ekki að fíla það í dag! Og í Norðlingaholti er alltaf miklu verra veður en allstaðar annarsstaðar! Svo er bíllinn minn bara vangefin og lekur alltaf úr einu dekki og bensínlokið opnast ekki og hann beyglast og heyrist í honum þegar ég pompa yfir hluti díses! OG ég er alltaf að hugsa um hvað í andskotanum fólk vill í jólagjöf! get ég ekki bara hent í ykkur einum hamstri á mann. ég bara spyr. ég er bara eiginlega í mega fílu og vil bara fara heim að lesa og dúlla mér og taka til og hlusta á jólalag og baka pipó! vill plís einhver vera sammála mér!
Hulda helvítis
»
01.11.2008 11:30:47 / Hulda
Hæ elskurnar mínar! Ég vaaar að vakna og ég hélt af öllu mínu hjarta að það væri virkur dagur! Svo ég ætlaði að fara að bruna í sturtu og klæða mig...en svo fattaði ég að það er LAAAU!!! ég elska lau!  Ég er semsagt eiginlega bara að blogga því ég er ekki lengur föst í Öxarfirði, en ferðin heim tók 11 klukkustundir og við vorum föst á fjalli í 3 klst að bíða eftir snjóruðningsbílum, frááábært! en þetta gekk nú alltsaman vel. Í kvöld erum við svo allar að fara að hittast hjá Sveindísi sem á afmæli á morgun ...stelpur! ættum við að kíkja smá í bæææ eftirá kannski pannski?! ...ef við förum ekki í svipaðar umræður og síðast þar sem allir urðu brjálaðir nema Selma sem vildi ólm tala um jólakransa! Selma yndislega góða dúlla!  Hlakka til að sjá ykkur- Hulda sem stelst stundum til að hlusta á jólalög í leyni.
»
26.10.2008 12:51:06 / Hulda
;">Hæ öllsömul! ;" /> ;" /> ;">Ég er að reyna að drepa tímann hérna uppi í sveit...en við erum semsagt lokuð inni sem stendur  ;" /> ;">Ég, pabbi og Erla María komum hingað norður í sveit á fimmtudaginn og erum búin að eiga góðar stundir, borða góðan mat með frændfólkinu á sveitabænum, rölta um, chilla, sofa og allt þetta venjulega sem maður gerir í sumarbústað...semsagt eiginlega ekkert ;" /> ;">Á aðfaranótt laugardags kom svo þessi þvílíki stormur með 25m/s minnir mig og það blés svo í gegn í bústaðnum að við þurftum að vera í úlpum og snjóbuxum inni  Við létum það þó ekki á okkur fá og spiluðum allt kvöldið með fólkinu úr sveitinni sem kom til okkar í mat ;" /> ;">Við vorum búin að búa þannig um okkur að hver hefði nóg af sængum og teppum svo engum yrði kalt yfir nóttina. Bóndinn skaust á bæinn og sótti aukaofn handa okkur til að hita betur upp. Laust eftir miðnætti fór rafmagn af allri sveitinni, sem þýðir að allir ofnar hættu að virka og já, það varð svartamyrkur. ;" /> ;" /> ;">Það varð kalt! ég sofnaði í snjóbuxum með 3 sængur og 1 teppi og í ullarsokkum, 2 peysum og ég veit ekki hvað og hvað. ;" /> ;">Erla María svaf frammi í sófa í úlpunni sinni með hettuna á sér og alltsaman! mjög fyndin eins og rækja þarna beygluð í sófanum! Samt nóg af rúmum  dúllan! ;" /> ;">Um 3 leytið var farið að verða of kalt í bústaðnum svo pabbi klæddi sig og ætlaði að setja bílinn í gang. Varaplanið okkar var að gista í bílnum því miklar líkur voru á því að við værum föst inni í skóginum. Ef ekki, hefðum við farið á bæinn og crassað þar. ;" /> ;">Þegar pabbi var að fara út fengum við rafmagnið aftur og vorum ekkert lítið ánægð með það ;" /> ;" /> ;">Örlagarík nótt leið og lítið var um svefn. Um nóttina man ég eftir að hafa sagt hálfsofandi við pabba ;">,,mig langar heim á morgun pabbi...!" ;"> Þannig að það var ákveðið. ;" /> ;">Í gærmorgun vaknaði ég og byrjaði að ganga frá dótinu okkar...pabbi hringdi í vegagerðina...ALLT ÓFÆRT. ;" /> ;">Við gerðum nú bara gott úr því og áttum einn vetrardag í viðbót í sveitinni, fórum út í fjárhús, bjuggum til snjókarl og fengum góðan mat ;" /> ;" /> ;">Í morgun vöknuðum við kl 9 og fórum úr bústaðnum. Vorum boðin í morgunkaffi á bænum sem var mjög kósi...pabbi hringir í vegagerðina...ALLT ÓFÆRT... ;" /> ;">Nú sitjum við systur á bænum í tölvunum okkar eins og sönn borgarbörn og tjékkum á vegagerdin.is á korters fresti.... ;" /> ;">Okkur líður nú samt bara mjög vel, eigum reyndar 8-9 klst ferðalag framundan...en ég get nú ekki sagt að það fari illa með mann að sitja í amerískum ;" /> ;" /> ;">Við biðjum bara að heilsa ykkur úr sveitinni í bili...sjáumst þegar vorar... ;" /> ;" /> ;">Hulda - innilokaða borgarbarnið.... ;" />
»
15.10.2008 12:26:44 / Hulda
Hæ! ég fór að velta því fyrir mér um daginn og muna eftir því hvað ég var sjúklega athyglissjúk sem krakki. Voruð þið þannig? Sem dæmi þá man ég eftir því að hafa verið veik heima þegar ég var kannski 7 ára. Mamma var líka veik og lá sofandi uppi í rúmi. Hvað á 7 ára barn að gera þegar það er búið að lita nokkrar myndir, horfa á eina mynd, skrifa eitt ljóð! (en það fannst mér mjööög eðlilegur hlutur þegar ég var barn) don't ask. Ég bað mömmu um að vakna og koma að gera eitthvað, því mér leiddist óendanlega mikið. Mamma var með hita þannig að hún sagði mér að fara að föndra eitthvað minnir mig. Í stað þess tók ég til minna ráða. Þegar ég skrifa þetta niður þá sé ég hvað þetta er sjúklegt, en ég var auðvitað óviti. Ég heftaði mig viljandi í puttann svo mamma myndi vakna! Og það blæddi ekkert lítið og það var mjög vont! ...eeen, bottom line, mamma vaknaði og hjúkraði mér og dagurinn varð betri fyrir MIG! díses kræst! Ég man líka eftir því þegar litla systir mín fæddist, þegar ég var að verða 4 ára að ég hljóp um alla íbúðina, herbergi úr herbergi, óháð því hvort það voru gestir eða ekki og æpti ERLAMARÍA ERLAMARÍA ERLAMARÍA ERLAMARÍA ERLAMARÍA. Sem hefur verið skrítin leið til þess að vekja athygli á sjálfri mér. Öskra nafn litlu systur minnar í tíma og ótíma. Svo þóttist ég oft vera að detta til þess að geta öskrað ,,pabbiiii bjaaaargaðu mééér..." en ég var einn dramatískasti krakki sem fannst. Svo þegar litla systir var í rúminu sínu þá söng ég fyrir hana tímunum saman sömu lögin aftur og aftur og aftur og bullaði texta þar sem ég mundi ekki hvað átti að koma. Það er til video af þessu sem er frekar fyndið. Ég lítil feitabolla að syngja ,,andrés stóð þar utan gátta, það átt'að fææærann tröllunum en þá var hringt í hólakirkju öllum jólabjöllunum..." svo byrjaði ég aftur ,,andrés stóð þar utan gátta..." og so on lengi vel... og btw þá hélt ég alltaf að þessi andrés væri önd.. Allavega, bara smá til að lesa í skammdeginu elskurnar mínar! LoVe!
»
12.10.2008 07:51:18 / Hulda
Góðan MORGUNN.... Ég held ég hafi aldrei áður bloggað klukkan 7 á sunnudagsmorgni, því þá er ég oftast sofandi. Það var hinsvegar ekki mikið um svefn hjá mér í nótt. Eldri systir mín fékk sér hund um daginn, 8 vikna. Hverjum finnst hvolpar ekki það sætasta í heiminum? Það finnst öllum. Eða allavega flestum, því þeir eru sjúklegar dúllur og klunnalegir og sætir. Ég var himinlifandi yfir því að þurfa að passa hann en hef hinsvegar verið að hárreita mig eftir að hafa passað hann yfir eina nótt. Þetta byrjaði þannig að við vorum að borða pítsu frænkurnar. Ég, sem elska hunda og hef alltaf gert, fer að leika við Nebba, en það heitir hann blessaður. Hann bítur í höndina á mér og rífur í buxurnar mínar. Hmm ókei kannski eru hvolpar bara alltaf að bíta og naga, ekkert mál. Gef honum séns þó það blæði smá úr höndunum á mér. Hann er jú, alheimskrútt en bítur of FAST! nagar ekki bara laust eins og ég bjóst við. Síðan kemur að því að við þurfum að fara að sofa, ég var súper þreytt eftir daginn. Hann leggst í bælið hans Tinna í herberginu mínu, en Tinni, labradorinn okkar, er í heimsókn annarsstaðar. Að sjálfsögðu byrjar hann á því að fara í slag við bælið og nagar það til og frá. Nóttin: - Ég sofna kl rúmlega eitt
- Vakna kl 2 við það að hann fer úr bælinu sínu og ráfar eitthvað um
- Eftir smástund byrjar hann að væla
- Ég vorkenni honum svo mikið að ég tek hann uppí rúm til mín
- Þá fer hann að bora sér þar sem koddinn minn er og ég færði hann til en hann reyndi alltaf að troða sér undir koddann og sængina þannig að ég lá frekar skringilega, vorkenndi þessu litla greyi. Sofnaði með hann við hliðina á mér sem var kósí og dúlló.
- Vakna aftur kl 3,4,5,6 við það að hann er eitthvað að vesenast og kvarta og opnar munninn og vill bíta mig endalaust og troðast þar sem ég ligg og ég vil ekki kremja hann!
- Beit mig í vörina þegar ég var að tala við hann, hoppaði bara framan í mig!
- Þannig að ég sagði við hann ,,Nefbjörn! ég á rúmið!"
- Og núna heitir hann Nefbjörn fyrir mér, sama hvað þú segir Hildur!

- Svo vakna ég aftur um 7. Þá fer hann að standa upp og horfa í spegilinn og hreyfa hausinn upp og niður og í hringi
- Svo af og til fer hann að leggjast niður og stökkva svo aftur upp, horfandi á sig í speglinum, stendur samt ennþá í rúminu.
- Sofna, en vakna aftur við gelt.
- Nefbjörn er að gelta á sjálfan sig í speglinum og ætlar að gera árás
- Búmm, gerir árás. Vælir
- Ég tek nokkrar myndir af honum því hann verður sjúklega klikkaður, byrjar að naga allt sem hægt er að naga, hleðslutækið af maccanum, teppið á gólfinu, rúmið og já, eiginlega allt sem hann gat nagað
- Ég er út um alla íbúð að skamma hann og taka um trýnið á honum
- Þá vælir hann meira, því hann skilur ekki afhverju hann má ekki bara éta töskuna mína
- Ég vorkenni honum smá en skamma hann samt helling
- Hann pissar í bælið
- Það voru dagblöð frammi fyrir hann til að pissa á!
- Ég bölva honum og fer fram á klósett
- Kem aftur fram
- Hann er búin að kúka á gólfið
- Þríf það upp (ég vil minna ykkur á að hjá mér er ennþá nótt!)
- Hann slæst aðeins meira við sjálfan sig í speglinum
- Gengur fram og til baka meðfram speglinum illur á svip
- Urrar á mig
- Kemur aftur upp í rúm til mín þegar ég byrja að skrifa þessa færslu og bítur í maccann minn!!!
- Bítur í símann minn
- Bítur í fallega LaSenza sloppinn minn
- Bítur í koddann minn
- Núna er hann að reyna að hoppa upp í rúm og vælir og vælir
- Fór aftur í bælið
- Horfir á mig með minnstu augum í heimi og er frekar illur á svip, hatar þessa vondu konu
- Núna tekur við partur 2, að reyna að klára að sofa. Svíður í augun!
Í gær langaði mig mjög mikið í hund...ég er ekki viss hvort það gerist í nánustu framtíð eftir þetta kvöld. Búin að dreyma um hund síðan ég var 5 ára. En ég hef Tinna svo lengi sem ég bý á Smáró. Nefbjörn hefur ekki heila. Bætir það upp með því að vera sætur og hafa OF stóra fætur og eyru miðað við stærð og að vera alltaf dettandi og rúllandi um allt Hvað er hann að tyggja? hann er að borða eitthvað en það er ENGIN matur hérna inni. Díses! Gott að vita að þið sofið vært lesendur kærir-læt fylgja með myndir af Nefbirni...   Látið ekki útlitið blekkja ykkur!  Skaðræðishvolpur! HULDA ÞREYTTA
»
05.10.2008 15:57:41 / Hulda
Sætu stelpurnar mínar, vil þakka fyrir gott kvöld á föstudaginn! þið eruð (eins og alltaf) hinir allra bestu djamm og dansifélagar! Myndir komnar á myspace  love Hulda
»
01.10.2008 12:35:57 / Hulda
Hæ sætu!
Nú ætla ég að segja ykkur hvað ég er mikill lúði Í dag þá vaknaði ég óvenju snemma vegna þess að 3 ára stelpa sem er í pössun uppi kom niður og vakti mig því hana langaði að vera í "innanundirpeysu" í leikskólanum en þorði ekki að biðja neinn um það nema mig. Dagurinn byrjaði vel og ég fór í tölvuna í smástund og síðan að taka mig til. Átti að mæta í vinnuna kl 11 og af einhverjum ástæðum var ég komin í bílinn kl. hálf 11. Ég hafði verið að sortera á mánudagskvöldið og fundið allskonar gamla geisladiska, skellt þeim í möppu og tekið þá með mér út í bíl. Meðal þessara diska voru -STELPU REUNION 1, 2 og 3- síðan í september 2006 þegar við fórum á öldusels reunion saman. Þegar ég var komin upp í Norðlingaholt var klukkan ennþá korter í og ég að blasta þessa geggjað skemmtilegu diska og syngja með í haustsólinni. Ég var ekki aaalveg tilbúin að fórna þessu einkadiskói mínu í miðri viku og mæta fyrr í vinnuna og bíða eftir yfirmanninum...þannig að ég keyrði bara hálfa leiðina upp á heiði..nei okei ekki alveg, en keyrði lengst hjá Heiðmörk og þar uppeftir, tók góðan bíltúr, kláraði að hlusta á spice girls, crazy town, ace of base og ú lalala og MARGT MARGT fleira sem lét mér líða SVOOO vel...mætti síðan í vinnuna hressari en aldrei fyrr þrátt fyrir GLATAÐA útborgun í morgun.
Mæli með svona morgnum...samt soldið lúðalegt ekki satt?  ...Ekki lúðalegra en við verðum á föstudaginn!!! díses hvað ég hlakka til!
ég elska ykkur stelpur, þið eruð súper og snillar! Munið að kaupa miða á BÓNUSVIDEO.IS
»
29.09.2008 10:28:14 / Hulda
Takk fyrir gott kvöld hjá Selmu í gær stelpur mínar! Gaman að hittast þrátt fyrir að umræðuefnið hafi verið frekar undarlegt á tímum og hiti færst í leikinn! ...Annars var ég að heyra að fallegustu 90's stelpurnar ætluðu að mæta í sínu langbesta outfitti á nasa næsta föstudag....hafiði eitthvað heyrt af því? Það er víst búið að ákveða það og plana Love YoU! Nenne horollomo snorks
»
Síður: 1 2 3 ... 36
|
Heimsóknir
Í dag: 24 Alls: 284526
|